Blánótt er fyrsta lagið sem heyrist af væntanlegri plötu með Sigurði Guðmundssyni og Memfismafíunni, Okkar menn í Havana. Lagið er eftir Braga Valdimar og Kidda Hjálm, og textinn eftir Braga. Sigurður og félagar fóru ásamt Tómasi R. Einarssyni til Kúbu og tóku þar upp frumsamin lög með kúbverskum tónlistarmönnum í hinu fornfræga Egrem hljóðveri í Havana.